FÓLK 2021

Hönnunarmerkið FÓLK kynnti á HönnunarMars vörulínur og verkefni í þróun auk þess að veita innsýn inn í hönnunarferli og hugmyndafræði merkisins. Hönnuðir FÓLKs eru Jón Helgi Hólmgeirsson, Ólína Rögnudóttir, Ragna Ragnarsdóttir, Studio Flétta, Theodóra Alfreðsdóttir og Tinna Gunnarsdóttir.

Hringrás hráefna er FÓLKi hugleikin og nýjustu vöruþróunarverkefni merkisins snúa að því að endurnýta og endurvinna hráefni sem falla til hérlendis. Á sýningunni eru hráefnin sett í forgrunn ásamt þeirri hugmyndavinnu og nýsköpun sem átt hefur sér stað í samtali FÓLKs og samstarfshönnuða merkisins.
Samhliða sýningunni opnar FÓLK Pop-Up verslun í sýningarrými sínu á Kolagötu, Hafnartorgi, og bjóða gestum að taka þátt í Hugmyndaspjalli við samstarfshönnuði og stofnanda merkisins, Rögnu Söru Jónsdóttur.


FÓLK er íslenskt hönnunarmerki sem stofnað var árið 2017 og leiðir saman hönnuði, hráefni og íslenskan iðnað með það að markmiði að stuðla að aukinni hringrás hráefna og nýsköpun í vöruhönnun.
Verkefnið er styrkt af Hönnunarsjóði og Frumkvöðlasjóði Íslandsbanka.

Sjá nánar