FJÖLRÖDDUN í Gallerí Gróttu Eiðistorgi

Fimmtudaginn 8. júní, kl. 17:00 opnar Björg Eiríksdóttir sýninguna FJÖLRÖDDUN í Gallerí Gróttu Eiðistorgi.

Í verkum sínum notar Björg miðla eins og málverk, vídeó, teikningu og textíl. Viðfangsefnin eru oftast tengd líkama manneskjunnar og veru hennar í náttúru.
Í verkinu Fjölröddun vinnur Björg með hugmyndina um að lög skynjana í náttúru vefjist hvert um annað og myndi mynstur í líkamanum.
Sýningu lýkur 18. ágúst.