Fimm hlutu Icelandic lamb Award of Excellence

Þann 25. nóvember síðastliðinn voru Icelandic Lamb award of excellence viðurkenningar afhentar við hátíðlega athöfn í listamiðstöðinni Mengi.

Fimm hlutu Icelandic lamb Award of Excellence – viðurkenningu til framúrskarandi samstarfsaðila Icelandic Lamb í flokki handverks og hönnunar á árinu 2018. Þau eru:

  • Anna Þóra Karlsdóttir listakona
  • Guðrún Bjarnadóttir fyrir Hespu
  • Hulda Brynjólfsdóttir og Tyrfingur Sveinsson fyrir Uppspuna
  • Philippe Ricart handverksmaður
  • Erla Svava Sigurðardóttir fyrir YARM

Ásta Magnúsdóttir, ráðuneytisstjóri mennta- og menningarmálaráðuneytisins afhenti  viðurkenningarnar við hátíðlega athöfn í listamiðstöðinni Mengi. Tilgangur viðurkenningarnar er að stuðla að auknum skilningi og þekkingu á gæðum íslensku ullarinnar og annarra sauðfjárafurða sem handverksfólk, listamenn og hönnuðir nýta sem hráefni í sköpun sína. Hún er hugsuð sem hvatning til frekari verðmætasköpunar, nýsköpunar og vöruþróunar úr íslenskum sauðfjárafurðum.
 
Icelandic lamb stóð að verðlaununum en markaðsstofan  er í samstarfi við yfir 200 innlenda aðila; veitingastaði, verslanir, framleiðendur, afurðastöðvar, listamenn, hönnuði og fleiri. Tilgangur samstarfsins er að kynna íslenska sauðfjárafurðir, mat, handverk og hönnun fyrir erlendum ferðamönnum. Merki Icelandic Lamb er ætlað að undirstrika sérstöku íslenskra sauðfjárafurða með tilvísun til uppruna, hreinleika og gæða.
 
Fjögurra manna dómnefnd valdi þá sem hlutu viðurkenningu í ár. Í henni sátu Emma Eyþórsdóttir dósent við Landbúnaðarháskóla Íslands, Sunneva Hafsteinsdóttir framkvæmdastjóri Handverks og hönnunar, Rúna Thors fagstjóri vöruhönnunar við Listaháskóla Íslands og Ninja Ómarsdóttir verkefnastjóri hjá Icelandic lamb.
 
Þetta er í annað sinn sem þessi viðurkenning er veitt fyrir handverk og hönnun úr íslenskum sauðfjárafurðum en í byrjun apríl veitti Icelandc lamb 21 samstarfsveitingastöðum viðurkenningu fyrir framúrskarandi matreiðslu á íslensku lambakjöti.

Vefur Icelandic lamb