ENDURUNNIÐ JÓLASKRAUT

ENDURUNNIÐ JÓLASKRAUT

02.12 - 20.12 2019 

Í haust óskaði HANDVERK OG HÖNNUN eftir nýjum hugmyndum af jólaskrauti fyrir sýningu í desember. Eingöngu var óskað er eftir jólaskrauti sem er á einhvern hátt endurnýttendurunnið eða endurgert. Valið var úr innsendum hugmyndum og nú má sjá útkomuna á sýningu hjá HANDVERKI OG HÖNNUN, Eiðistorgi. Gamall útsaumur, tímarit, stóris, grillpinnar og sushi prjónar eru meðal þess sem öðlast hafa nýtt líf.

Eftirtaldir eiga muni á sýningunni: Auður Bergsteinsdóttir, Jóhanna Kristín Jósefsdóttir, Lára Magnea Jónsdóttir, Margrét Guðnadóttir, Sigurborg Stefánsdóttir, Sólveig Hildur Björnsdóttir, Þórunn Rakel Gylfadóttir og Þórdís Baldursdóttir.

Sýningin er opin alla virka daga kl. 9-16 en nýtur sín einnig vel í gluggunum utan opnunartíma.

Sýningin stendur til 20. desember - Verið velkomin.

Sjá einnig hér

Sýningu lýkur 20. desember 2019