Endalaust - sýningaropnun í dag

Í dag, fimmtudaginn 30. ágúst kl. 18 verður sýningin ENDALAUST opnuð í Duus Safnahúsum á Ljósanótt í Reykjanesbæ.

Við lifum í miklu neyslusamfélagi. Á hverjum degi er hent miklu magni af hverskyns rusli og afgöngum. Ef litið er á ruslið sem spennandi hráefni er hægt að breyta þessu úr vítahring í hringrás. Hráefnið verður þá efniviður í nýja hluti í stað þess að vera íþyngjandi rusl. Þannig verður til endalaus hringrás.

Sýningin Endalaust er sýning á verkum 20 hönnuða og handverksfólks sem eiga það sameiginlegt að vinna með hráefni sem annars færi forgörðum. Hönnuðum sem eiga það jafnframt sameiginlegt að koma inn á því stigi hringrásarinnar að þeirra hlutverk er að gjörnýta hráefni.

Sóunin fór fyrst að eiga sér stað með aukinni iðnvæðingu og kröfunni um síaukinn hraða og framlegð á hverja vinnustund. Nú er offramleiðsla á á flestum sviðum og flest erum við ómeðvituð um það rusl sem við skiljum eftir okkur á jörðinni.

Skapandi fólk þarf að vera í fararbroddi við að taka næstu skref til að snúa við þessari þróun og benda á nýjar lausnir við að gjörnýta það sem í dag kallast rusl.

Á sýningunni má einnig sjá stuttmynd um efni og endurvinnslu sem Þráðlausar (þær Ragnheiður Stefánsdóttir og Margrét Katrín Guttormsdóttir) gerðu en henni er ætlað að vekja fólk til umhugsunar um umhverfismál.

Sýnendur eru AFTURÁsta Vilhelmína GuðmundsdóttirÁsthildur MagnúsdóttirDögg GuðmundsdóttirFlétta og Steinunn Eyja Halldórsdóttir, Friðbjörg KristmundsdóttirGuðrún Borghildur IngvarsdóttirHandabandHelga Ragnhildur MogensenKristín Sigfríður Garðarsdóttir og Áslaug Snorradóttir, Magna RúnOlga BergljótÓlöf Erla BjarnadóttirStudio PortlandStudio TrippinUnnur Karlsdóttir - LjósberinnUSEE STUDÍOVala Sigþrúðar JónsdóttirÝrúrarí og Þráðlausar.

Sýningarstjóri Ragna Fróða

Endalaust er samstarfsverkefni Listasafns Reykjanesbæjar og HANDVERKS OG HÖNNUNAR. 

Opnunartími á Ljósanótt:

Fimmtudagur kl. 18-21 - opnun
Föstudag, laugardag, og sunnudag kl. 12-18

Sýningin er svo opin alla daga til 4. nóvember kl. 12-17.

Í tengslum við sýninguna verða haldnar tvær vinnustofur fyrir almenning dagana 15. sept. (Handaband) og 6. okt. (Þráðlausar). Vinnustofurnar verða kl. 14-16 og nánar kynntar síðar.

Sýningin er jafnframt skólasýning allra grunnskóla í Reykjanesbæ haustið 2018 og mun stuttmyndin sem Þráðlausar gerðu um efni og endurvinnslu verða notuð sem innblástur fyrir nemendur.  

Sýningin ENDALAUST er styrkt af Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu.