Eitthvað að bíta í

Dagný Guðmundsdóttir segir frá listaverki sínu Eitthvað að bíta í sunnudaginn 18. ágúst kl. 15. Verkið er frá árinu 2018 og er staðsett á opnu svæði milli Safamýrar og Háaleitisbrautar. 

Verkið var hluti af sýningunni Hjólið – Fallvelti heimsins sem Myndhöggvarafélagið í Reykjavík stóð að síðastliðið sumar sem hluti sýningarraðar í aðdraganda 50 ára afmælis félagsins.
Verkið samanstendur af hraukabeði sem í er plantað grænmeti, kryddjurtum og ætum blómum. Verkið er á opnu svæði milli Safamýrar og Háaleitisbrautar, í almannarými þar sem íbúar hverfisins og þeir sem eiga leið um geta sótt sér eitthvað að bíta í. 

Aðgangur ókeypis

Nánari upplýsingar um leiðsögnina á vef Listasafns Reykjavíkur

Viðburður á Facebook