Dagsverkin - Anna Þóra Karlsdóttir

Dagsverkin er yfirskrift listsýningar sem  hefur verið opnuð í Mjólkurbúðinni, sal Myndlistarfélagsins í Gilinu á Akureyri.

Verkin á sýningunni eru eftir textíllistakonuna Önnu Þóru Karlsdóttur sem vann þau á liðnu ári í einangrun vegna covid faraldursins. Nokkur verkanna urðu til á Njáluslóðum, en önnur á Hjalteyri við Eyjafjörð, þar sem hún dvaldi í tjaldi (Yurt) sem á ættir að rekja til Mongólíu.
Verkin eru úr íslenskri ull sem Anna Þóra hefur kembt og skilið togið frá þelinu. Hún nýtir aðeins dúnmjúkt létt þelið sem hún litar í fjölbreytta tóna og leggur í þunnar slæður sem lagðar eru hver yfir aðra og þæfðar í ferninga. Þegar vel er að gáð má greina litina sem undir liggja í gegnum efstu slæðurnar. Útkoman leiðir hugann að náttúrunni t.d. himninum í öllum sínum margbreytileika. Verk sem við fyrstu sýn virðist svart, má lesa sem himin er nóttin tekur við af deginum, því það glittir í fjólubláa og rauða tóna undirlaganna, rétt eins síðustu geisla sólarlagsins. Annað verk minnir á ljósa dalalæðu þar sem litir náttúrunnar leynast undir þunnu yfirborðinu. Og í öðrum verkanna er það dagrenning og sólarlag sem kemur upp í hugann er horft er á blöndun litanna.
Heiti sýningarinnar Dagsverkin vísar til þess að það tók listakonuna einn dag að vinna hvert verk. Einnig kallast titillinn á við þann gífurlega fjölda dagsverka sem unnin hafa verið í Gilinu í gegnum tíðina. Sláturhús var þar og síðar allskonar blómleg starfsemi á vegum KEA eins og mjólkursamlag, málningarverksmiðja, sápugerð, sælgætis- og gosdrykkjaverksmiðja, brauðgerð og kjötvinnsla; að því ógleymdu að neðst í Gilinu voru höfuðstöðvar KEA og aðalverslun.
Anna Þóra á að baki farsælan feril sem myndlistarkona. Hún hefur haldið fjölda einkasýninga, tekið þátt í samsýningum og verk hennar hafa verið valin á opinberar sýningar utan lands sem innan eins og t.d. á textílyfirlitssýninguna Listþræðir sem lauk nýlega í Listasafni Íslands. Anna Þóra nam myndlist við Myndlista-og handíðaskóla Íslands og Konstfack í Stokkhólmi og hefur dvalið á vinnustofum erlendis. Hún bjó á Akureyri á árunum 1977-1983 og kenndi þá við Myndlistarskóla Akureyrar og Glerárskóla.