Umsóknarfrestur framlengdur til 18. september!

H A N D V E R K
O G H Ö N N U N
í Ráðhúsi Reykjavíkur
17.-21. nóvember 2022

Sýningin HANDVERK OG HÖNNUN Í RÁÐHÚSI REYKJAVÍKUR verður haldin dagana 17. til 21. nóv. 2022.

Ákveðið hefur verið að framlengja umsóknarfrest fram á sunnudag. Öllum sem vinna við handverk, listiðnað og hönnun er heimilt að sækja um þátttöku en valið er inn á sýninguna af faglegri valnefnd. Allar nánari upplýsingar á umsóknareyðublaði.

UMSÓKNARFRESTUR ER TIL 18. SEPTEMBER
UMSÓKNAREYÐUBLAÐ

Sýningin var fyrst haldin í Ráðhúsinu árið 2006 og hefur verið gríðarlega vinsæl frá upphafi og dregið að sér þúsundir gesta. Það er mikið gleðiefni að geta nú haldið þennan viðburð aftur eftir tveggja ára hlé.
Það eru listamennirnir og hönnuðirnir sjálfir sem eru á staðnum og kynna vörur sínar á sýningunni.
Smellið hér fyrir allar nánari upplýsingar.