Umsóknarfrestur framlengdur!

Ákveðið hefur verið að framlengja umsóknarfrest vegna sýningarinnar HANDVERK OG HÖNNUN í Ráðhúsi Reykjavíkur til mánudagsins 20. september.

Smelltu hér til að sækja um ←

HANDVERK OG HÖNNUN heldur sýningu á handverki, hönnun og listiðnaði í Ráðhúsi Reykjavíkur í nóvember 2021.

Sýningin stendur í fimm daga og er aðgangur ókeypis.

Opnunartími:

Fimmtudagur 18. nóvember kl. 16-19
Föstudagur 19. nóvember kl. 12-18
Laugardagur 20. nóember kl. 12-18
Sunnudagur 21. nóvember kl. 12-18
Mánudagur 22. nóvember kl. 12-18

Upplýsingar:

  • Öllum sem vinna við handverk, listiðnað og hönnun er heimilt að sækja um þátttöku á sýningunni.
  • Sérstök fagleg valnefnd leggur mat á umsóknirnar og velur þátttakendur og er ný valnefnd er skipuð fyrir hverja sýningu.
  • Mikilvægt er að sýningin endurspegli fjölbreytt úrval og mun valnefnd hafa það í huga þegar þátttakendur eru valdir.
  • Mikilvægt er að þeir sem hafa oft tekið þátt í sýningunni láti vita ef þeir ætla að kynna nýjar vörur.
  • Mikilvægt er að allir sem áhuga hafa á þátttöku geri ráð fyrir að vera sem mest á staðnum sjálfir. Eitt af markmiðum þessarar sýningar er að gestir hitti fólkið á bak við hlutina.

Umsóknarfrestur til 20. september - nánari upplýsingar og umsóknareyðublað hér