sam(t)vinna - samsýning Textílfélagsins

Textílfélagið býður alla hjartanlega velkomna á sýninguna sam(t)vinna á Korpúlfsstöðum.

Þar eru samtöl og samvinna meðlima sett í forgrunn. Ferli var sett af stað þar sem þátttakendum var boðið að mynda pör og vinna að því að finna sameiginlegan flöt í listsköpun sinni. Afraksturinn er margvíslegur; aðferðir, efnistök og sjónarhorn hljóta hér ýmist endurnýjun eða endurskoðun, ný verk líta dagsins ljós og eldri verk birtast í nýju samhengi.
 
Sýningarstjórar: Bethina Elverdam og Edda Mac
 
Þátttakendur:
Anna Gunnarsdóttir
Anna Þóra Karlsdottir
Annamaria Lind Geirsdóttir
Arnþrúður Ösp Karlsdóttir
Auður Vésteinsdóttir
Bethina Elverdam
Christalena Hughmanick
Diljá Þorvaldsdóttir
Edda Mac
Gerður Guðmundsdóttir
Guðrún Hadda Bjarnadóttir
Guðrún Kolbeinsdóttir
Harpa Jónsdóttir
Helga Einarsdóttir
Hrafnhildur Sigurðardóttir
Judith Amalía Jóhannsdóttir
Kristveig Halldórsdóttir
Maja Siska
Olga Bergljót Þorleifsdóttir
Ólöf Ágústína Stefánsdóttir
Ragna Fróða
Ragnheiður Björk Þórsdóttir
Sigríður Vala Vignisdóttir
Sigrún Halla Ásgeirsdóttir
Steinunn Björg Helgadóttir
Þorgerður Hlöðversdóttir
 
Sýningin stendur til 23.apríl 2023 er opin sem hér segir:
  • Föstudagur 14. apríl 16:00-18:00
  • Laugardagur 15. apríl 12:00-17:00
  • Sunnudagur 16. apríl 12:00-17:00
  • Föstudagur 21. apríl 16:00-18:00
  • Laugardagur 22. apríl 12:00-17:00
  • Sunnudagur 23. apríl 12:00-17:00