Jólasýning // Opin vinnustofa - Kristín Gunnlaugsdóttir og Margrét Jónsdóttir

Verið hjartanlega velkomin á jólasýningu Kristínar Gunnlaugsdóttur myndlistarkonu og Margrétar Jónsdóttur leirlistakonu fyrstu helgina í aðventu.

Árleg jólasýning Kristínar Gunnlaugsdóttur og  Margrétar Jónsdóttur verður haldin á vinnustofu Kristínar að Unnarbraut 20, Seltjarnarnesi um næstu helgi og er opið laugardag og sunnudag frá kl. 13 - 17.

Virðum sóttvarnarreglur og höfum grímur meðferðis - allir velkomnir.