HEIÐI – Heidi Strand sýnir textílverk

HEIÐI – Heidi Strand sýnir textílverk í Listhúsi Ófeigs á Skólavörðustíg

Heidi Strand er fædd í Noregi en hefur búið á Íslandi frá því um tvítugt. Hún var í listnámi í Noregi og náði þar fljótt góðum tökum á textíl af ýmsu tagi. Hún hélt sína fyrstu einkasýningu í Ásmundarsal árið 1982. Síðan þá hefur hún haldið einkasýningar á Norðurlöndum öllum og er sýningin í Listhúsi Ófeigs sú 29. í röðinni. Heidi hefur einnig tekið þátt í fjölmörgum sam- og farandsýningum í bæði Evrópu, Bandaríkjunum og Japan, þar sem alþjóðlegar dómnefndir velja verkin, og hafa sumar þessara sýninga farið víða um. Heidi hefur náð alveg sérstökum tökum á nálaþæfingu og í Listhúsi Ófeigs sýnir hún myndverk af ýmsum stærðum tengd íslenskri náttúru, bæði af kindum en ekki síður af fuglum sem hafa lengi verið henni hugleiknir.
Heidi er félagi í bæði Textílfélaginu og SÍM. Sýningin opnar 3. júní kl. 14-16 og stendur til 28. júní. Sýning hennar verður opin virka daga kl. 10-18 og laugardaga kl. 11-16 og er aðgangur ókeypis.