Glóandi Jökull – alþjóðleg glerlistarhátíð á Hellissandi

Glóandi Jökull – alþjóðleg glerlistarhátíð á Hellissandi

Glóandi Jökull – Glowing Glacier Glass Festival verður sett 24. júní 2026 á Hellissandi og stendur til 19. júlí. Á þessum tíma breytist byggðarkjarninn undir Snæfellsjökli í lifandi miðstöð glerlistar þar sem sýningar, glerblástur, vinnustofur, fyrirlestrar og fjölskylduviðburðir fara fram á mörgum stöðum í þorpinu.

Hátíðin er samstarfsverkefni skipuleggjenda frá fjórum löndum. Sýngarstjórn er í höndum Bjarna Sigurbjörnssonar frá Íslandi en aðal skipuleggjendur hátíðarinnar eru Alison Lowry frá Írlandi, Jonas Noel Niedermann frá Sviss og Nadja Recknagel frá Þýskalandi. Verkefnið byggir á samstarfi við Handverk og hönnun ásamt fjölda íslenskra og erlendra listamanna, menningarstofnana og fagfólks á sviði glerlistar.

Meginuppistaða hátíðarinnar er samsýningin Glowing Glacier í Gamla leikfimissalnum á Hellissandi. Sýningarstjóri er Bjarni Sigurbjörnsson og á sýningunni eru verk eftir Carissu Baktay (Ísland/Kanada), Ólöfu Einarsdóttur (Ísland), Sigrúnu Einarsdóttur (Ísland), Alison Lowry (Írland), Jonas Noel Niedermann (Sviss/Danmörk), Nadju Recknagel (Þýskaland), Brynhildi Þorgeirsdóttur (Ísland), Michaelu Trávníčkovu (Tékklandi), Selinu Amelie Weber (Þýskalandi) og Idu Wieth (Danmörku). Sýningin gefur góða mynd af þeirri fjölbreytni sem einkennir samtímaglerlist þar sem handverk, efnisrannsóknir og listsköpun mætast.

Samhliða samsýningunni eru þrjár einkasýningar á ólíkum stöðum á Hellissandi. Í Þjóðgarðsmiðstöðinni sýnir Fiona Byrne frá Írlandi verkið Returning the Skin. Í Félagsmiðstöðinni Afdrepi sýnir danski listamaðurinn Laura Sonne Lund verkið Echoes og í 3 Veggjum / Himinbjörgum sýnir þýski listamaðurinn Louise Lang sýninguna Fractures of Shadow.

Dagskrá hátíðarinnar nær langt út fyrir sýningarsalina. Í Vöruhúsinu á Hellissandi verður starfræktur færanlegur glerofn þar sem gestir geta fylgst með lifandi glerblæstri daglega. Þar vinna meðal annars Carissa Baktay, Anders Vange og Jan Vyskocil með heitt gler fyrir opnum tjöldum. Gestum gefst jafnframt kostur á að taka þátt í vinnustofum og kynnast efninu og vinnsluferlinu af eigin raun.

Fyrirlestrar og kvöldviðburðir fara meðal annars fram í Bjarkey Bókakaffi. Þar verður meðal annars fjallað um sögu glerlistar á Íslandi þegar Sigrún Einarsdóttir flytur erindið Gler í Bergvík – upphaf glerlistar á Íslandi. Einnig verða kynningar og samtöl við þátttakandi listamenn auk annarra menningarviðburða sem tengjast hátíðinni.

Fjölskyldur eru stór hluti af markhópi hátíðarinnar. Lifandi glerblástur, opnar vinnustofur, leiðsagnir og skapandi smiðjur gera gestum á öllum aldri kleift að kynnast gleri sem efni og handverki. Með því að opna vinnuferlið fyrir almenningi, og leifa gestum og gangandi að prófa handbragðið verður til einstakt tækifæri til að sjá hvernig glóandi hráefni umbreytist í fullmótað listaverk.

Glóandi Jökull er einnig mikilvægt framlag til umræðu um stöðu sérhæfðs handverks á Íslandi. Glerlist er meðal þeirra greina sem byggja á mikilli efnisþekkingu og sérhæfðri verkkunnáttu en hafa takmarkaða innviði hér á landi. Sýningar og viðburðir af þessu tagi skapa tækifæri til miðlunar, faglegra tengsla og sýnileika fyrir grein sem á sér fáa en öfluga iðkendur. Í stefnumótun Handverks og hönnunar til ársins 2030 er Glowing Glaciers sérstaklega mikilvægt meðal alþjóðlegra samstarfsverkefna sem stuðla að eflingu íslensks handverks og aukinni miðlun sérhæfðrar handverkskunnáttu.

Hátíðin hlaut styrk frá Nordic Culture Point og nýtur jafnframt stuðnings Sóknaráætlunar Vesturlands, Culture Ireland, Culture Moves Europe, Pentagram Stiftung, Alexander Tutsek-Stiftung, Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi, Handverks og hönnunar, Þjóðgarðsmiðstöðvarinnar á Hellissandi, Reykjavík Glass, 3 Veggja, Niesenglass GmbH, Glasspool og fleiri samstarfsaðila sem hafa komið að uppbyggingu verkefnisins.

Með Glóandi Jökli verður Hellissandur í sumar samkomustaður listafólks, handverksfólks og gesta frá ólíkum löndum. Hátíðin sýnir hvernig sérhæft handverk getur skapað ný tengsl milli staðar, efnis og samfélags og um leið varpað ljósi á mikilvægi þess að varðveita og þróa þá þekkingu sem handverksgreinarnar byggja á.

https://www.glowingglacier.com/

Verið öll hjartanlega velkomin!

Glowing Glacier