Elísabet Jónsdóttir nýr framkvæmdastjóri Handverks og hönnunar

Stjórn Handverks og hönnunar hefur ráðið Elísabetu Jónsdóttur í starf framkvæmdastjóra
sjálfseignarstofnunarinnar. Elísabet tekur við starfinu af Gunnhildi Eddu Guðmundsdóttur.
Elísabet býr yfir víðtækri reynslu sem hönnuður og verkefnastjóri skapandi verkefna og
viðburða, reynslu sem spannar allt frá hönnun kynningarefnis til uppbyggingar menningar- og
upplifunarrýma.


Á árunum 2021–2026 spilaði Elísabet stórt hlutverk í uppbyggingu Elliðaárstöðvar sem
áfangastaðar í eigu Orkuveitunnar. Þar bar hún meðal annars ábyrgð á listrænni stjórnun,
vörumerkjauppbyggingu, viðburðadagskrá, uppsetningu sýninga ásamt hönnun kynningar- og
markaðsefnis. Elísabet var einnig á meðal stofnenda Mengis, margrómaðs menningarrýmis í
Reykjavík. Þá starfaði hún sem hönnuður á árunum 2007–2020 þegar hún stofnaði og rak,
ásamt öðrum, hönnunarfyrirtækin Volki og Wetland þar sem áhersla var lögð á hönnun vara úr
íslenskum hráefnum.


Elísabet útskrifaðist með BA-gráðu í grafískri hönnun frá Listaháskóla Íslands árið 2000 og lauk
meistaragráðu í hagnýtri menningarmiðlun frá Háskóla Íslands árið 2021. Hún stundaði einnig
nám í hönnun við Sandberg Instituut í Amsterdam og í innanhúsarkitektúr við Royal Academy of
Art í Haag (KABK) á árunum 2002-2006.


Á þessum tímamótum mun Gunnhildur Edda láta af störfum hjá Handverki og hönnun eftir
þriggja ára farsælt starf. Á þeim tíma hefur Edda unnið að mikilli endurskipulagningu og
stefnumótun stofnunarinnar til framtíðar. Hefur starf hennar einkennst af mikilli elju og ástríðu og
eru henni færðar innilegar þakkir fyrir vel unnin störf í þágu handverks á Íslandi. Að sama skapi
er Gunnhildi Eddu óskað velfarnaðar í framtíðarverkefnum sínum.


Um Handverk og hönnun
Handverk og hönnun var stofnað árið 1994 sem verkefni þáverandi mennta- og
menningarmálaráðuneytis en varð að sjálfseignarstofnun árið 2007. Meginmarkmið Handverks
og hönnunar er að stuðla að eflingu handverks, listiðnaðar og hönnunar, og að auka skilning
almennt á menningarlegu, listrænu og hagnýtu gildi handverks, hönnunar og listiðnaðar með
fjölbreyttri kynningarstarfsemi.