Átaksverkefni á sviði hönnunar og arkitektúrs

Opnað fyrir úthlutun 50 milljóna til átaksverkefna á sviði hönnunar og arkitektúrs.

Hönnunarsjóði hefur verið falið að úthluta 50 milljónum til átaksverkefna á sviði hönnunar og arkitektúrs, samkvæmt þingsályktun um tímabundið fjárfestingarátak til að vinna gegn samdrætti í hagkerfinu í kjölfar heimsfaraldurs vegna Covid-19.

Veittir verða styrkir til margvíslegra verkefna á sviði hönnunar og arkitektúrs og lögð áhersla á verkefni til þróunar, nýsköpunar, menningarlífs og atvinnusköpunar, gjarnan með þverfaglegri nálgun. Markmið og úthlutunarreglur Hönnunarsjóðs gilda við úthlutunina, en tekið verður tillit til aðstæðna vegna Covid-19.

Skilyrði styrkveitingar samkvæmt þingsályktun:
• Verkefnið hefjist eigi síðar en 1. september 2020 og ljúki fyrir 1. apríl 2021.
• Átaksverkefni sem styðja við fjölbreytta starfsemi á sviði lista og menningar með áherslu á sköpun og virka þátttöku listamanna í menningarlífi landsmanna.
• Verkefni uppfylli grunnmarkmið fjárfestingarátaks um að styðja við eftirspurn og atvinnu til skamms tíma með arðbærum verkefnum.
• Sýnt sé fram á gildi verkefnis og mikilvægi þess fyrir landsmenn.
• Styrkveiting sé til undirbúnings, þróunar og framkvæmd verkefnis.
• Lagðar séu fram ítarlegar upplýsingar um verkefnið auk tímaáætlunar.

Úthlutunin hefur ekki áhrif á aðrar úthlutanir úr Hönnunarsjóði 2020.

Umsóknarfrestur rennur út 18. maí og úthlutun er áætluð 29. maí 2020.

Nánari upplýsingar og umsóknir má finna á heimasíðu Hönnunarsjóðs hér.