ABSTRAKT

ABSTRAKT sýningu Ingu Elínar sem var opnuð á Hönnunarmars  í Listhúsi Ófeigs stendur til 31. maí nk.

Á sýningunni leitar Inga Elín aftur til sjötta og sjöunda áratugs síðustu aldar og setur óhlutbundin form í nýjan búning í verkum sínum. Hún leikur sér með bæði einföld og flóknari form sem eru fengin úr undirmeðvitund hennar á hverjum tímapunkti. Verkin eru mörg og mismunandi, allt frá stórum skálum úr steinleir yfir í fínni postulínsskúlptúr þar sem hún blandar saman fígúratívum formum á óhlutbundinn hátt.
Opið sem hér segir
Virka daga 10:00 - 18:00
Laugardaga 12:00 - 16:00