- 22 pcs.
- 27.03.2018
FUGLAR er páskasýning ársins 2018 á Skriðuklaustri og er hún unnin í samvinnu Gunnarsstofnunar og HANDVERKS OG HÖNNUNAR. Þar má sjá fjölbreytta fugla úr leir, tré og pappír svo eitthvað sé nefnt. Á sýningunni er einnig bókin "Fuglar" sem Angústúra gaf út í fyrra. Sýnendur eru: Ágúst Jóhannsson, Erna Jónsdóttir, Guðrún Gísladóttir, Hafþór Ragnar Þórhallsson, Hjörleifur Hjartarson og Rán Flygenring, Margrét Þórarinsdóttir, Oddný Jósefsdóttir, Rósa Valtingojer, Smávinir/Lára Gunnarsdóttir og Úlfar Sveinbjörnsson.