HVÍTUR +

ARKIRNAR

27. mars til 16. apríl 2008

 

Fimmtudaginn 27. mars var opnuð áttunda sýningin á skörinni hjá HANDVERKI OG HÖNNUN í  Aðalstræti 10.

Að þessu sinn er það hópur kvenna sem kalla sig ARKIRNAR sem sýna handgerðar bækur og bókverk.

Sýningin heitir HVÍTUR + og sýnendur eru:

 

ARKIR er hópur listakvenna sem hittast reglulega til að bera saman bækur sínar.

Hópurinn hefur um margra ára skeið stundað bókverkagerð af ýmsum toga. Meðlimir hópsins sinna öllu jafna fjölbreyttri

listsköpun á sviði málara- og grafíklistar, textíllistar, ritlistar og myndlýsinga. Bókverkin eru einstök verk eða framleidd í takmörkuðu upplagi. Ýmsar aðferðir myndlistar og mótunar eru notaðar við að búa til bækurnar, s.s. málun, teikning, klippitækni, ljósmyndun og þrykkaðferðir ýmisskonar.

 

Anna Snædís Sigmarsdóttir,

Arnþrúður Ösp Karlsdóttir,

Áslaug Jónsdóttir,

Helga Pálína Brynjólfsdóttir,

Ingiríður Óðinsdóttir,

Jóhanna M. Tryggvadóttir,

Sigurborg Stefánsdóttir og

Svanborg Matthíasdóttir.