Þjónusta / stofnanir   

 

Atvinnuráðgjafar

Atvinnuráðgjafar aðstoða einstaklinga sem áhuga hafa á stofnun fyrirtækja, standa fyrir námskeiðahaldi, vinna að undirbúningi ýmiskonar atvinnuþróunarverkefna og eru sveitarfélögum til ráðuneytis.

 

Einkaleyfastofan

ELS fer með málefni varðandi einkaleyfi, vörumerki, hönnunarvernd, byggðarmerki og önnur hliðstæð réttindi sem kveðið er á um í lögum, reglugerðum og alþjóðasamningum um vernd eignarréttinda á sviði iðnaðar.
 

Heimilisiðnaðarfélag Íslands

Rekur verslun og þjónustudeild að Nethyl. Þar eru vörur og þjónusta vegna þjóðbúningagerðar, útsaums, vefnaðar og þæfingar. Rekur einng Heimilisiðnaðarskólann þar sem haldin eru fjölbreytt handverksnámskeið.

 

Hönnunarmiðstöð Íslands

Hönnunarmiðstöð er ætlað að auka skilning á mikilvægi góðrar hönnunar og arkitektúrs fyrir þjóðfélagið. Hlutverk hennar  er að efla hvers kyns hönnun sem veigamikinn og virðisaukandi þátt í íslensku atvinnulífi og þannig auka samkeppnishæfni og þannig auka samkeppnishæfni og verðmætasköpun í íslensku efnahagslífi.

 

Impra

Impra nýsköpunarmiðstöð er miðstöð upplýsinga og leiðsagnar fyrir frumkvöðla og lítil fyrirtæki. Hér á síðunni eru hagnýtar upplýsingar auk tækja og tóla fyrir fyrirtæki og frumkvöðla, bæði fyrir þá sem nú þegar stunda fyrirtækjarekstur og þá sem eru að hefjast handa. Jafnframt eru á síðunni upplýsingar um þjónustu Impru og helstu verkefni.

 

Menningarnet Íslands

Ýmsar upplýsingar í sambandi við sýningar, styrki og fleira.

 

Menningarviti

Menningarráð Vesturlands er samstarfsvettvangur sveitarfélaga á Vesturlandi og hefur meðal annars það hlutverk að standa fyrir öflugu þróunarstarfi í menningarmálum, úthluta fjármagni til menningarverkefna á Vesturlandi samkvæmt ákvæðum samningsins og hafa eftirlit með framkvæmd hans.

Elísabet Haraldsdóttir var ráðin menningarfulltrúi á Vesturlandi í maí 2006. 

 

Menntamálaráðuneytið

Skrifstofa menningarmála hefur umsjón með stjórnsýslu og stefnumótun í menningarmálum. Þar er m.a. fjallað um málefni lista og menningararfs og fjölmiðlamál.

 

Myndstef - Myndhöfundasamtök Íslands

Tilgangur Myndstefs er að fara með höfundarétt félagsmanna vegna opinberrar endurbirtingar og sýningar á verkum þeirra og stuðla að almennri höfundaréttargæslu á þessu sviði. Myndstef innheimtir þóknun fyrir notkun á höfundarétti félagsmanna sinna og kemur henni til skila til þeirra.

 

Reykjavíkurborg

Menningarmálanefnd gerir tillögur til borgarráðs um menningarstefnu Reykjavíkurborgar. Vinnur að eflingu menningarstarfsemi í Reykjavík í samræmi við menningarstefnu borgarinnar með því m.a. að virkja menningarstofnanir borgarinnar, örva listræna sköpun og gefa almenningi tækifæri til að njóta listar og menningar.

 

Samtök Iðnaðarins

Samtök iðnaðarins vinna að hagsmunum iðnaðarins á öllum sviðum og í nánu samráði við fyrirtækin sjálf. Þjónusta við félagsmenn er annars vegar við einstök fyrirtæki og starfsgreinahópa en hins vegar þverfagleg, s.s. í gæðamálum, menntamálum og markaðs- og kynningarmálum.

 

Upplýsingaþjónusta menningaráætlana Evrópusambandsins 

Cultural Contact Point á Íslandi.
 

Útflutningsráð Íslands

Meginhlutverk Útflutningsráðs er að auðvelda íslenskum fyrirtækjum að selja vörur sínar, þjónustu og þekkingu erlendis. 
 

Verslunarráð Íslands

Þar fást upplýsingar um ATA-Carnet skírteini sem nauðsynleg eru listamönnum sem ætla að fara með verk á sýningar erlendis.


 

  

Til baka í TENGLA