Þrjár systur - Margrét, Þórdís og María
| | Listin og handverkið hefur skipað stóran sess í lífi þeirra systra frá barnæskunni á Akureyri. Þær hafa allar tekið þátt í samsýningum og haldið einkasýningar, en þetta er í fyrsta skipti sem þær sýna saman. Viðfangsefni þeirra á þessari sýningu eru blóm og við þau fást þær hver á sinn hátt með mismunandi miðlum. Hér fær áhorfandinn að upplifa áhrif blómanna ýmist í fíngerðum þráðum útsaumsins, brothættum og loftkenndum leirrósettum og litsterkum blómum olíumálverksins. Margrét snýr gjarnan hlutunum á hvolf, snýr röngunni á réttuna og tekur engu sem gefnum hlut. Hér sýnir hún rósettur á gólfinu sem áhorfendur þurfa að ímynda sér að hangi í loftinu og "rauða herbergið hans Mattisse" er orðið að þrívíðu verki. Þræðir Þórdísar liggja til fortíðar, hún sækir innblástur í gamlar handverkshefðir formæðranna, hún tínir blóm úr gömlum púðum og af veggteppum og skapar sinn eigin fallega blómaskrúða. María leggur upp í andlegt ferðalag inn í risavaxin blómin. Hún bíður áhorfendum að koma með og njóta augnabliksins, hugleiða og upplifa óendanleg ævintýri. | | Sjá vefslóð: http://www.menningarhus.is | | ...til baka | |