fimmtudaginn 7. júní 2012 hefst kl. 16:00

Senda atburðFlóra - Icelandic Design

Ingunn Þráinsdóttir hefur opnað nýja sýningu á textíllínu sem kallast Flóra á Skörinni hjá HANDVERKI OG HÖNNUN, Aðalstræti 10, Reykjavík. Ingunn Þráinsdóttir grafískur hönnuður á Egilsstöðum er höfundur Flóru-icelandic design, en Flóra varð til eftir listamannadvöl Ingunnar í Vesterålen, Norður-Noregi haustið 2010 þar sem Ingunn stúderaði plöntulíf og bar saman við plöntulíf á Austurlandi. Afrakstur vinnustofunnar var heilmikið af teikningum sem þróuðust svo yfir í þrívíðar textílvörur. Myndverk og tauserviettur í Flóru línunni voru sýnd á sýningum víða á Austurlandi og í Norður-Noregi sumarið og haustið 2011.
...til baka