| Íris Ólöf Sigurjónsdóttir sýnir textíla sumarið 2012 í Heimilisiðnarsafninu á Blönduósi. Íris Ólöf hefur lifað og hrærst í textíl frá unglingsaldri. Endurnýting og frumleg notkun hráefnis úr ýmsum áttum hefur frá fyrstu tíð verið stór og einkennandi þáttur í list hennar. Á sýningunni ´"Bútar úr fortíð" vinnur hún með efnisbúta héðan og þaðan sem allir eiga sér þó fjölskyldusögulega fortíð í öðru samhengi, ýmist úr hennar eigin búi eða frá móður hennar, formæðrum og frænkum. Þessum konum tileinkar Íris Ólöf sýninguna. |