laugardaginn 28. janúar 2012 hefst kl. 14:00

Senda atburðHandaverk frú Magneu Þorkelsdóttur

Magnea Þorkelsdóttir biskupsfrú var mikil hannyrðakona og urðu mörg listaverk til í höndum hennar. Hún saumaði fjölda þjóðbúninga bæði á sig og afkomendur sína. Á sýningunni verða valdir búningar úr safni fjölskyldunnar. Magnea fæddist 1. mars 1911 í Reykjavík. Þegar Magnea var á barnsaldri kynntist hún nágrannakonu sinni en af henni nam hún fyrstu nálarsporin aðeins fimm ára að aldri. Magnea gekk í Miðbæjarskólann og síðan í Kvennaskólann í Reykjavík. Hún var afburðanemandi og hlaut verðlaun við útskrift bæði fyrir verkkunnáttu og bóklegar greinar. Hæfileikar hennar nýttust er hún réðst ung stúlka til vinnu á saumastofunni Dyngju í Reykjavík. Þar vann hún við að baldera og sauma þjóðbúninga m.a. skautbúninga fyrir Alþingishátíðina 1930. Þótt Magnea hafi verið jafnvíg á bóknám og verknám stóð hugur hennar alltaf til hannyrða sem hún vann af ástríðu og einstöku listfengi alla tíð.
Sjá vefslóð: http://www.thjodminjasafn.is
...til baka