| Á sýningunni eru svokallaðir módelkjólar sem saumaðir voru eftir pöntun og ýmsir fylgihlutir eins og skór, hattar, hanskar og undirföt. Kjólarnir eru listaverk, sumir látlausir og einfaldir aðrir tilkomumiklir og glæsilegir, kjólar sem pössuðu við konuna og tilefnið. Sýningarhöfundur er Steinunn Sigurðardóttir fatahönnuður, en með einstakri innsýn sinni í tískustrauma 20. aldar tekst henni að glæða kjólana á sýningunni nýju lífi.
Kjólarnir koma úr safni Þjóðminjasafnsins og frá einkaaðilum. Söfnun 20. aldar klæðnaðar hefur verið stunduð um hríð í safninu og þá sérstaklega með áherslu á íslenskt handverk og framleiðslu. Þeir kjólar sem koma frá einkaaðilum voru valdir til að sýna annars vegar tískustraumana og handverkið og hins vegar einstaklingana sem gengu í kjólunum, því módelkjóllinn er ekki fullburða listaverk fyrr en rétta konan er komin í hann. |