| Guðný Guðmundsdóttir sýnir í kaffihúsi Gerðubergs 22. janúar - 11. apríl 2012. Guðný leyfir okkur að skyggnast inn í ólíka heima með litríkum klippimyndum sínum í kaffihúsi Gerðubergs. Guðný byrjaði fyrir nokkrum árum að klippa myndir úr tímaritum, raða þeim saman og skapa töfrandi myndheima. Hún fann að þetta listform sem opnaðist fyrir henni væri ákveðin þerapía (heilun) og hugleiðsla. |