| Íslenska listakonan Hrafnhildur Arnardóttir hlaut Norrænu textílverðlaunin í ár, verðlaunin voru afhent þann 10. nóvember síðastliðinn og var þá jafnframt opnuð einkasýning á verkum Hrafnhildar í textílsafninu í Borås. Verk Hrafnhildar þykja frumleg, en hún notar m.a. bæði alvöru hár og gervihár í verk sín. |