Steinn, skæri, pappír og lyklar að himnaríki
| | Verið velkomin á opnun sýningarinnar fimmtudaginn 18. ágúst kl. 17.
Á sýningunni Steinn, skæri, pappír og lyklar að himnaríki eru steinar úr íslenskri náttúru, skæri af ýmsum stærðum og gerðum, pappír í formi biblíumynda og guðsorðabóka ásamt lyklum sem ef til vill ganga að himnaríki sjálfu.
Sýningargripirnir koma úr söfnum sex einstaklinga, en þeir eru: Axel Kaaber (steinar), Guðrún Þ Guðmundsdóttir (biblíumyndir), Helga Hansdóttir (lyklar), Herdís Helgadóttir (guðsorðabækur), Petra Sveinsdóttir (steinar) og Sigurdís Björk Baldursdóttir (skæri). Yfirbragð sýningarinnar er hlýlegt og gamaldags, himinblár litur og gylltar stjörnur eins og í gömlum sveitakirkjum skapa fallega umgjörð um skemmtilegt samsafn hluta. Sýningin höfðar til fólks á öllum aldri enda heillandi fyrir alla að upplifa sanna safnarastemmningu. | | Sjá vefslóð: http://gerduberg.is/desktopdefault.aspx/tabid-3475 | | ...til baka | |