| Íslenska bútasaumsfélagið stendur fyrir yfirlitssýningunni Bút fyrir bút í 30 ár í Perlunni daganna 10.-19. september. Sýningin er haldin í tilefni 10. ára afmælis félagsins. Sömuleiðis verða sýnd teppi sem voru saumuð fyrir samkeppni félagsins er heitir Tækifæriskort. Félagið er aðili að EQA sem eru samtök bútasaumsfélaga í Evrópu og var þeim félögum boðið að taka þátt í samkeppninni. Sýningin verður opnuð föstudaginn 10. september klukkan 17:00 og verður opin á opnunartímum Perlunnar, frá 10:00 til 18:00, alla daga.
|