| Hönnunarsafn Íslands verður opnað að Garðatorgi 1, í Garðabæ þann 27. maí, með sýningu sem ber heitið “Úr hafi til hönnunar”. Á sýningunni gefst kostur á að skoða fjölbreytt úrval gripa úr roði og fiskleðri eftir íslenska og erlenda hönnuði. Að auki verður til sýnis úrval úr safneign sem varpar ljósi á söfnunarsvið safnsins. Frá og með 28. maí verður svo safnið opið almenningi, alla daga nema mánudaga kl. 12-17.
Munirnir á sýningunni koma víða að og eru fjölbreyttir enda er áherslan lögð á að sýna sjálft efnið. |