laugardaginn 1. maí 2010 hefst kl. 14:00

Senda atburðÉg kýs blómlegar konur...

Konur í verkum Ásmundar Sveinssonar, þar sem sjónum er beint að konum og kvenímyndinni í verkum Ásmundar. Þá hefur hluti af vinnustofu Ásmundar verið endurgerður, sem gerir gestum kleift að skyggnast inn í líf og starf myndhöggvarans. Stór hluti af verkum Ásmundar fjalla um konur; allt frá ástríkum mæðrum til stritandi vinnukvenna eða frá viðkvæmum stúlkum til hamslausra tröllkvenna. Titill sýningarinnar er tilvitnun í Ásmund sjálfan í viðtali sem tekið var við hann í Þjóðviljanum sumarið 1961 undir yfirskriftinni „Vinnan er lífið — og fegurðin“. Verkin á sýningunni lýsa sameiginlegum tilfinningum sem birtast sem táknsögur fyrirbæra eða skáldskapar. Þau spanna allan feril Ásmundar og sýna allt frá fyrstu raunsæisverkum hans til íburðarmikilla framsetninga hans á kvenkynsímyndunum. Sýningarstjóri er Yean Fee Quay. Sýningin stendur til 17. apríl árið 2011.
Sjá vefslóð: http://www.listasafnreykjavikur.is
...til baka