laugardaginn 13. mars 2010 hefst kl. 15:00

Senda atburðÍ barnastærðum

Sýningaropnun laugardaginn 13. mars kl. 15.00. Hér má sjá barnaleikföng og -húsgögn sem sækja innblástur í leiki þeirra og hugmyndaheim. Mikinn hluta íslenskra verka hafa höfundar hannað fyrir sín eigin börn en ekki verið framleidd. Hér er því einstakt tækifæri til að kynnast verkum annars þekktra höfunda á borð við Gunnar Magnússon húsgagnahönnuð, Manfreð Vilhjálmsson arkitekt og myndlistarmanninn Dieter Roth. Á sýningunni er enn fremur hönnun frá Vík Prjónsdóttur, Róshildi Jónsdóttur og Sigríði Heimisdóttur, auk fjölda yngri hönnuða. Flestir erlendu gripirnir eru úr smiðju heimsþekktra hönnuða, til dæmis Charles & Ray Eames, Hella Jongerius og El Ultimo Grito. Einnig eru á sýningunni kassabílar eftir nemendur í vöruhönnun við LHÍ. Í tilefni sýningarinnar unnu þrír ungir hönnuðir, Hanna Jónsdóttir, Haraldur Civelek og Ragnheiður Ösp Sigurðardóttir, nýsköpunarverkefni sem felst í hönnun fyrir börn. Kynning á nýsköpunarverkefninu fer fram 20. mars klukkan 15.
Sjá vefslóð: http://www.hafnarborg.is
...til baka