| Kynning á HönnunarMars í Textíl, Lokastíg 28, 101 Reykjavík, gegnt Hallgrímskirkju.
Aðalbjörg Erlendsdóttir fata- og textílhönnuður framleiðir textílvöru undir merkinu Budda design.
Hún hefur þróað nýja gerð af efnum undir hughrifum frá hinum óútreiknanlegu jökulsprungum. Efnin eru í tveimur lögum; það efra er mótað í munstur og því næst pressað fast á límkennt undirlag.
|