| Sýning á HönnunarMars hjá Sævari Karli, Bankastræti 7, 101 Reykjavík. Bryndís Bolladóttir kynnir línuna Kúlan í verslun Sævars Karls í Bankastræti.
Kúlan bregður á leik, hún getur verið snagi, hitaplatti, skraut, leikfang og hljóðdempari. Línan er unnin á Íslandi og framleidd úr íslenskri þæfðri ull. Kúlan er einnig til sölu og sýnis í versluninni Minju á Skólavörðustíg 12 og í safnbúð Þjóðminjasafns Íslands.
Píanóleikur og gleði verður við völd föstudaginn 19. mars frá 16 til 18 og laugardaginn 20. mars frá 14 til 16.
|