fimmtudaginn 18. mars 2010 hefst kl. 10:00

Senda atburðMótun, textíll og teikning - Nemendasýning

Á skörinni, Aðalstræti 10, 101 Reykjavík á HönnunarMars. Í samvinnu við Tækniskólann og erlenda háskóla kynnir Myndlistaskólinn í Reykjavík nýja námsmöguleika í verktengdu hönnunarnámi. Í náminu er lögð áhersla á frjótt verklag og þá margvíslegu möguleika sem felast í efnum og aðferðum textílgreina, teikningu og mótun í leir og tengd efni. Horft er til framtíðar með fulltingi aðferða og hefða fortíðar. Við uppbyggingu námsins í teikningu er m.a. unnið með tölvuleikjafyrirtækinu CCP og háskólanum i Cumbriu. Textílnámið er þróað í samvinnu við Steinunni Sigurðardóttur fatahönnuð sem og háskóla í Noregi, Skotlandi og Danmörku. Ein námsbrautin, Mótun – leir og tengd efni, hóf göngu sína haustið 2007 og útskrifuðust fyrstu nemendurnir vorið 2009. Námið er tveggja ára fullt nám í samvinnu Tækniskólans og Myndlistaskólans og er metið jafngilt 120 ECTS eininga námi. 26 nemendur eru við nám í Mótun - leir og tengd efni á vorönn 2010. Hér gefur að líta ýmsar tilraunir, meðal annars unnar í íslenskan leir, auk fullunninna verka sem sum hver voru unnin í samstarfi við íslensk fyrirtæki. Námið er metið jafngilt tveggja ára listnámi við Listaháskólann í Cumbríu í Englandi og geta nemendur í Mótun - leir og tengd efni sótt um að fara beint inn á þriðja ár þar og ljúka B.A.-gráðu á einu ári.
Sjá vefslóð: http://www.myndlistaskolinn.is
...til baka