| Sýningin Íslensk samtímahönnun - húsgögn, vöruhönnun og arkitektúr var opnuð í hinni virtu hönnunarmiðstöð Dana, Dansk Design Center þann 26. febrúar. Þetta er í fyrsta sinn sem íslensk hönnunarsýning er sett upp í Dansk Design Center og uppsetningin býður upp á einstækt tækifæri fyrir íslenska hönnuði og arkitekta að efla tengsl við norræna hönnunarsamfélagið, atvinnulífið, framleiðendur og iðnaðinn.
|