laugardaginn 30. janúar 2010 hefst kl. 15:00

Senda atburðÆvispor

Útsaumsverk Guðrúnar Guðmundsdóttur Laugardaginn 30. janúar verður sýningin Ævispor – útsaumsverk Guðrúnar Guðmundsdóttur opnuð í Bogasal Þjóðminjasafns Íslands. Á sýningunni má sjá útsaumsverk Guðrúnar sem hún hefur unnið með gömul handrit og forn útsaumuð klæði að fyrirmynd. Verk Guðrúnar eru tilkomumikil og hafa sterka skírskotun í listrænan arf og þjóðlegar hefðir Íslendinga. Þau eru dæmi um hvernig íslenskar konur í nútímanum nýta sér menningararfinn og sýna vel hvernig hefð og nýsköpun fara saman. Sýningin er liður í þeirri stefnu safnsins að endurspegla samtímann og tengsl hans við gamlar hefðir. Samhliða sýningunni verður úrval útsaumsverka úr fórum safnsins til sýnis á 3. hæð. Útsaumurinn er frá 17., 18. og 19. öld og sýnir ómetanlegan arf íslenskrar handmenntar.
Sjá vefslóð: http://www.natmus.is/
...til baka