laugardaginn 16. janúar 2010 hefst kl. 15:00

Senda atburðLjósbrot - Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir

Ung listakona Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir vinnur stórt rýmisverk í Sverrissal á fyrstu hæð safnsins. Hún notar fínlega og ofurnákvæma nálgun við endursköpun rýmisins og kallar um leið á skerpu í allri upplifun áhorfandans. Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir (f. 1976) útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands vorið 2007, en hún hefur áður lokið BA prófi í listasögu frá háskólanum í Árósum. Hún hefur vakið athygli fyrir að vinna með hefðbundna þætti eins myndbyggingu, liti og form í stórum rýmisverkum sem áhorfendur ganga inn í og ferðast um til að skynja verkin í heild sinni. Hún leikur sér þannig með hugmyndina um yfirborð hins móderníska, tvívíða málverks og býr til abstrakt veröld sem fólk getur gengið inn í. Ingunn hefur unnið markvisst að myndlist frá því hún útskrifaðist og tekið þátt í fjölmörgum sýningum, bæði hérlendis og erlendis. Þar ber helst að nefna alþjóðlega samsýningu í Bremen í júní 2008 og einkasýningu í Cuxhavener Kunstverein í maí sama ár. Síðastliðið vor var Ingunn önnur af tveimur sýningarstjórum að samsýningunni Minjar, náttúra í myndlist // myndlist í náttúru, í Náttúrufræðistofu Kópavogs, auk þess að vera sjálf með verk. Hún er annar tveggja meðlima myndlistartvíeikisins Hugsteypunnar. Ingunn hlaut hvatningastyrk listamanna frá Hafnarfjarðarbæ 2009.
Sjá vefslóð: http://www.hafnarborg.is
...til baka