|
Nafn mitt er Hólmfríður Ófeigsdóttir og á heima á Búastöðum í Vopnafirði.
Ég er sauðfjárbóndi og handverkskona.
Ég hannaði fyrstu vettlinga 9 ára gömul og fyrstu lopapeysuna 12 ára. Ég lauk húmæðraskólaprófi við Húsmæðraskólanum á Löngumýri í Skagafirði vorið 1965.
Vorið 1992, námskeið hjá Jóhönnu Erlu Pálmadóttur til að læra að spinna. Hef ég sótt mörg námskeið viðkomandi handverki.
1993 var keyptur rokkur, kambar og kembirulla. Síðan hef ég spunnið mikið úr togi og þeli. Kanínufiða, hundshár, kattahár ,geitaull, sauðnautaull hafa einnig komist í mínar hendur.
Á árunum 1993 til 2004 voru handprjónaðar 20 til30 peysur árlega flestar sérhannaðar.
Frá árinu 1993 hef ég prjónað 20 til 65 vettlinga á ári úr lopa, þeli, kambgarni og kanínufiðu flesta sérhannaða af mér. Síðustu árin hef ég aðallega prjónað tvíbandaða vettlinga með uppábroti.
Frá árinu 1996 hef ég spunnið og síðan prjónað um 20 kg af kanínufiðu.
Frá árinu 2000 hef ég prjónað 20 til 30 pör árlega af handstúkum úr kambgarni og 2007 hef ég prjónað 25 pör af handstúkum úr hreindýraleðri.
Frá haustinu 2005 hef ég hannað og prjónað toppa, sjöl og handstúkur úr handklipptum reimum úr hreindýraleðri.
Sýningar
Dreki 1995 á Egilstöðum í bás BSA.
Landbúnaðarsýning í Selskógi Egilsstöðum 1997 .
Jólasýning handverks og hönnunar 1999 og 2001.
Vest Norden í Laugardalshöll haustið 2002.
Sumarsýning handverks og hönnunar 2003.
Töskusýning hjá handverk og hönnun haustið 2003.
Norrænuhúsið, jólasýning 2003.
Auður Austurlands, farandsýning 2005-2006.
Ráðhúsi Reykjavíkur haustin 2006 og 2007. Valið var inn á sýninguna með valnefnd.
Sýning á Bláþræði í Bláskjá á Egilsstöðum í júlí 2007. |