Að stuðla að eflingu handverks, hönnunar og listiðnaðar og auka gæðavitund á þessu sviði.
Að auka skilning almennt á menningarlegu, listrænu og hagnýtu gildi handverks, hönnunar og listiðnaðar með fjölbreyttri kynningarstarfsemi.
Að koma til móts við þarfir þessara greina fyrir þjónustu, ráðgjöf og upplýsingar.
Að halda áfram uppbyggingu gagnagrunns á þessu sviði.
Að vera sameiginlegur vettvangur þeirra sem starfa að handverki, hönnun og listiðnaði. |