Skrifstofa HANDVERKS OG HÖNNUAR er staðsett í elsta húsi Reykjavíkur, Aðalstræti 10 á 2. hæð í gamla Innréttingahúsinu.

 

Haldnar eru sýningar á stigaskörinni þegar komið er upp á hæðina. Sýningarrýmið kallast „Á skörinni”. Þetta er ca. 25 fm. fallegt rými undir súð. Gert er ráð fyrir að sýna muni frá 1 - 3 einstaklingum í einu. Hugmyndin er að alltaf sé eitthvað spennandi að skoða á skörinni. Sýningarnar eru opnar á opnunartíma hússins og stendur hver sýning í 3 - 4 vikur að jafnaði. Þessar sýningar eru kynntar eins og aðrar sýningar sem HANDVERK OG HÖNNUN hefur haldið, á heimasíðu, með fréttatilkynningum og í dagskrá dagblaða. Einnig er hægt að skoða myndir frá öllum sýningum Á skörinni hér á heimasíðunni.

Umsóknareyðublað

Allar nánari upplýsingar eru veittar  á skrifstofu HANDVERKS OG HÖNNUNAR sem er opin alla virka daga frá kl. 9.00 - 16.00

sími 551 7595 einnig er hægt að senda fyrirspurn á netfangið handverk@handverkoghonnun.is

 

Hér er að neðan eru myndir af sýningarsvæðinu.