Skipulag og kynning

HANDVERK

OG HÖNNUN

í Ráðhúsi Reykjavíkur

 

1. – 5. nóvember 2012

 

HANDVERK OG HÖNNUN heldur sýningu/kynningu á  handverki, hönnun og listiðnaði í Ráðhúsi Reykjavíkur í byrjun nóvember. Sýningin stendur í 5 daga og er aðgangur ókeypis.

 

Staður og tími: 

Ráðhús Reykjavíkur   1. - 5. nóvember 2012

 

Opnunartími :

Fimmtudagur 1. nóv. kl. 16­­­ - 19

Föstudagur 2. nóv. kl. 10 - 19

Laugardagur 3. nóv. kl. 10 - 18

Sunnudagur 4. nóv. kl. 10 - 18

Mánudagur 5. nóv. kl. 10 - 19        

                       

Þátttakendur:

Öllum sem vinna við handverk, listiðnað og fjölbreytta hönnun s.s. vöruhönnun, fatahönnun er heimilt að sækja um. Sérstök fagleg valnefnd leggur mat á umsóknirnar og velur þátttakendur. Mikilvægt er að sýningin/kynningin endurspegli fjölbreytt úrval og mun valnefnd hafa það í huga þegar valið er inn. Umsækjendur eru hvattir til að hafa þessa árstíð í huga þegar þeir velja listmuni/vörur til kynningar.

Umsóknir um þátttöku verða að berast sem fyrst en í síðasta lagi 8. júní 2012.

 

Niðurstaða valnefndar mun liggja fyrir í síðasta lagi  19. júní 2012

 

Það er mikilvægt að allir sem huga á þátttöku geri ráð fyrir að vera sem mest á staðnum sjálfir. Eitt af markmiðum þessarar sýningar/kynningar er að gestir hitti fólkið á bak við hlutina.

 

Vinsamlegast vandið útfyllingu á sérstöku umsóknareyðublaði. Umsókn verða að fylgja 6 myndir af verkum eða 6 sýnishorn (ekki fleiri og ekki færri) og ferilskrá. Mikilvægt er að öll umbeðin gögn fylgi umsókninni.

 

UMSÓKNAREYÐUBLAÐ (word)

UMSÓKNAREYÐUBLAÐ (pdf)