13. apríl 2010
Handverks- og sögusýning á Iðufelli í Laugarási
um hvítasunnuhelgina
Haldin verður Handverks- og sögusýning á Iðufelli í Laugarási dagana 21. - 24. maí. Þetta er fyrsta sýning sinnar tegundar á Suðurlandi og mun framvegis verða haldin árlega um hvítasunnuna.
Stefnt er að því að hafa sem sýninguna sem fjölbreyttasta jafnt úti sem inni og verður ýmislegt spennandi til sýnis og sölu.
Handverk í fjölbreyttri mynd er vaxandi grein á Íslandi og ekki síst á þessum tímum er rétt að styðja íslenskan iðnað. Fólk á sviði lista, handverks og hönnunar er hvatt til að taka þátt í þessari sýningu, handverkssýning verður til ekki án þeirrar þátttöku.
Handverks- og sögusýningin á Iðufelli er sölusýning og því frábær vettvangur fyrir handverksfólk að koma sér á framfæri.
Á sögusýningunni verða til sýnis gamlir og þjóðlegir hlutir, áhöld og verkfæri s.s. strokkur, skilvinda, smjörstrokkur, rokkur, hesputré og ýmsir aðrir hlutir sem notaðir voru til sveita áður fyrr. Einnig verða til sýnis gamlar búvélar og nýjar til samanburðar og gamlir traktorar.
Opið verður í fjóra daga, frá föstudegi til mánudags til að koma til móts við sem stærstan hóp fólks, bæði heimafólk og ferðafólk.
Aðgangseyrir á sýninguna verður kr. 1.000.- og gildir aðgöngumiðinn alla helgina og jafnframt á dansleiki sem haldnir verða öll kvöldin. Gestir geta þannig mætt á sýninguna alla dagana og á dansleiki öll kvöld helgarinnar án þess að borga neitt aukreitis fyrir það.
Umsóknir þurfa að berast fyrir 15. apríl nk.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar má nálgast á heimasíðu handverkssýningarinnar, http://handverkssyning.123.is
Hægt er að senda umsókn í tölvupósti á hotelhvita@simnet.is eða í pósti á Hótel Hvítá, Iðufelli, Laugarási. Einnig er hægt að sækja um í síma 696-5868.
Athugið að þeir sem taka þátt í þessari fyrstu handverks- og sögusýningu á Suðurlandi fá 20% afslátt af þátttökugjaldi árið 2011.
Allar nánari upplýsingar gefur Snæbjörn í síma 696 5868
|
Senda frétt á

|
|