8. mars 2010

Sauðfé, hlýri, hross og geit”

Nú stendur yfir sýningin  „Sauðfé, hlýri, hross og geit”, á Skörinni hjá HANDVERKI OG HÖNNUN. Þar sýnir Ragnar G. Einarsson bókbandverk.

 

Á sýningunni gefur að líta fjölbreyttar bækur sem Ragnar hefur bundið inn á undanförnum árum.

 

Bókband er gamalgróin iðngrein sem á sér langa sögu. Hún byggir á vönduðu handverki þar sem rétt handbragð  og auga fyrir formfegurð ráða ferðinni. Listbókband er hreint handverk sem í mörgu styður sig við sömu markmið  og aðrar listgreinar. Skilin milli handverks og listar eru því óljós þar sem greinarnar styðja hvor aðra.

 

Ragnar nam bókband í Iðnskólanum í Reykjavík og í Hólabókbandi. Hann lauk meistaraprófi árið 1972.

 

Sýningin stendur til 15. mars og er opin alla virka daga frá kl. 9 til 18 og frá 12 til 17 um helgar.

 


 

 

Senda á Facebook