Föstudaginn 5. mars n.k. kl. 12.00 hefst í Toppstöðinni fundaröð þar sem ýmis málefni tengd nýsköpun og iðnaði verða krufin til mergjar.
Fundirnir verða 1. og 3. föstudag hvers mánaðar og verða nánar auglýstir hverju sinni á facebooksíðu stöðvarinnar og á www.toppstodin.is
Áhersla verður lögð á umræður og þáttöku gesta.
Fyrsta erindið verður kynning á hugmyndafræði Toppstöðvarinnar og aðstöðu.
Í stöðinni er hönnunarálma þar sem frumkvöðlar vinna að fjölbreyttum verkefnum, en einnig vel búið málmsmíðaverkstæði sem gefur mikla möguleika í frumgerðavinnu og framleiðslu.
Vonir standa til að í framtíðinni verði einnig aðstaða til að frumverðavinnu úr tré, plasti og textíl, svo eitthvað sé nefnt.
Fundirnir eru opnir öllum, en Toppstöðin er staðsett við Rafstöðvarvegi 4, Reykjavík.
|