1. mars 2010

Íslensk samtímahönnun - húsgögn, vöruhönnun og arkitektúr

 

Sýningin Íslensk samtímahönnun - húsgögn, vöruhönnun og arkitektúr var opnuð í hinni virtu hönnunarmiðstöð Dana, Dansk Design Center þann 26. febrúar. Þetta er í fyrsta sinn sem íslensk hönnunarsýning er sett upp í Dansk Design Center og uppsetningin býður upp á einstækt tækifæri fyrir íslenska hönnuði og arkitekta að efla tengsl við norræna hönnunarsamfélagið, atvinnulífið, framleiðendur og iðnaðinn.

Dansk Design Center er hönnunarmiðstöð sem leggur höfuðáherslu á atvinnulífið og hvernig það getur nýtt sér hönnun í tengslum við nýsköpunarferli og viðskiptaþróun. Það er því einstakt tækifæri fyrir Hönnunarmiðstöð Íslands að vera í samstarfi við Dansk Design Center með íslenska hönnun og arkitektúr.

 

Verkefnið er liður í því markmiði Hönnunarmiðstöðvar Íslands að íslensk hönnun og arkitektúr verði órjúfanlegur hluti af hinum norrænu hönnunarþjóðum sem notið hafa mikillar virðingar alþjóðlega um árabil. Um leið og unnið er að því langtímamarkmiði að auka útflutningstekjur af íslenski hönnun og arkitektúr erlendis. Hér er því augljóslega um einstakt tækifæri að ræða fyrir íslenska hönnun og arkitektúr og er liður í markvissri kynningu og markaðssetningu á íslenskri hönnun innanlands sem utan.

Sýningunni er ætlað að vera spegill þess sem telja má á einn eða annan hátt gæði í íslenskri hönnun undanfarin ár. Áherslan er á góðar hugmyndir sem hafa þroskast af faglegum metnað, alvöru og skynsemi; hugmyndir sem eru unnar til enda í anda hugsunarháttar sem vert er að setja á oddinn í dag. Markmiðið er að árétta gildi góðrar hönnunar og öflugs hugvits fyrir mannlegt samfélag - verðmæti til að virkja til framtíðar. Sýningarstjóri er Elísabet V. Ingvarsdóttir.  

Sýningin er farandsýning og hefur að geyma verk um 20 hönnuða sem eru valin með það í huga að eiga erindi ytra til frekari kynningar, sölu eða framleiðslu, en nú sem aldrei fyrr er brýnt að vera sýnileg í alþjóðlegu samhengi og styrkja erlend menningar- og viðskiptatengsl. Frá Danmörku fer sýningin til Shanghai í Kína þar sem hún verður sett upp í tengslum við þátttöku Íslands á Expó í september. Stefnt er að því að hún fari til fleiri Norðurlanda í kjölfarið. 

 

Sjá nánar á www.honnunarmidstod.is


 

Senda á Facebook