26. febrúar 2010

Sauðfé, hlýri, hross og geit

Í dag föstudaginn 26. febrúar var opnuð ný sýning á skörinni hjá HANDVERKI OG HÖNNUN. Að þessu sinni er það er Ragnar G. Einarsson sem sýnir bókbandverk.

 

Sýninguna nefnir hann  „Sauðfé, hlýri, hross og geit”, þar gefur að líta fjölbreyttar bækur sem Ragnar hefur bundið inn á undanförnum árum.

 

Bókband er gamalgróin iðngrein sem á sér langa sögu. Hún byggir á vönduðu handverki þar sem rétt handbragð  og auga fyrir formfegurð ráða ferðinni. Listbókband er hreint handverk sem í mörgu styður sig við sömu markmið  og aðrar listgreinar. Skilin milli handverks og listar eru því óljós þar sem greinarnar styðja hvor aðra.

 

Ragnar nam bókband í Iðnskólanum í Reykjavík og í Hólabókbandi. Hann lauk meistaraprófi árið 1972.

 

Sýningin stendur til 15. mars og er opin alla virka daga frá kl. 9 til 18 og frá 12 til 17 um helgar.

 


 

 

Senda á Facebook