Textílsýningin L'Aiguille en Fête á sér fastan sess í París og er mjög vel sótt ár hvert. Meðal sýnenda nú í febrúar 2010 var Hélène Magnússon sem var að kynna prjónabókina sína Rósaleppaprjón í nýju ljósi á frönsku í fyrsta skipti.
Sýnendur á L'Aiguille en Fête eru mjög fjölbreyttir en það þarf að sækja um og velur dómnefnd úr umsækjendum. Stærstu nöfnin í prjónaheiminum var að finna á sýningunni svo sem Rowan og Phildar en einnig var þar að finna japanskt garn frá Habu textiles úr málmum, pappa, kókós og fl. og prjónabúðina Loop í London með mjúkt garn. Á L'Aiguille en Fête þetta árið var sérstök sýning á ótrúlegum búningum frá Opéra de Paris. |
Hélène segir reynsluna af því að taka þátt í sýningunni mjög jákvæða, það hjálpi til við að mynda sambönd, fá meiri umfjöllun og koma bókinni í fleiri búðir en vissulega hafi verið þreytandi að endurtaka það sama frá morgni til kvölds í fjóra daga. Fólk kemur alls staðar að í Frakklandi á sýninguna og þar ríkir skemmtilegt andrúmsloft þrátt fyrir að troðfullt hafi verið alla dagana og varla hægt að hreyfa sig.
Hélène segir að fólki hafi fundist mjög áhugavert að heyra um hvernig gömul íleppa prjónahefð væri á bak við hönnun hennar. Hjá henni hefði stoppað allskyns fólk til að forvitnast um hvaða flíkur þetta væru uppi á vegg hjá henni en það voru gamlir íleppar. Bókin vakti mikla athygli og seldist mjög vel en sumir vildu kaupa tilbúnar flíkur. „Ein kona fékk meira að segja taugaáfall vegna þess ég neitaði að selja henni peysu sem hafði tekið nokkur hundruð tíma að prjóna... “ segir Hélène að lokum.
Hægt er að fá meiri upplýsingar um sýninguna og skoða myndir frá henni á vefsíðunni www.aiguille-en-fete.com |
|