18. febrúar 2010

Dýrfinna Torfadóttir er bæjarlistamaður Akraness 2010

Dýrfinna Torfadóttir, gullsmiður og skartgripahönnuður hefur verið útnefnd bæjarlistamaður Akraness árið 2010.

Í rökstuðningi stjórnar Akranesstofu fyrir útnefningu Dýrfinnu segir m.a.:  

„Stjórn Akranesstofu leggur til að Dýrfinna Torfadóttir, gullsmiður verði tilnefnd bæjarlistamaður Akraness árið 2010. Dýrfinna hefur vakið athygli víða um land fyrir skartgripi sína og margvíslega hönnun og hefur um leið vakið athygli á Akranesi með störfum sínum og listsköpun. Hún hefur m.a. skipulagt heimsóknir hópa gesta og ferðafólks til Akraness til að kynna þeim listsköpun og menningu á Akranesi og allt það sem bærinn hefur að bjóða.“ 

 

Dýrfinna Torfadóttir er fædd árið 1955 í Reykjavík en ólst upp á Ísafirði og bjó þar eftir að námi lauk og þar til hún fluttist til Akraness haustið 2001.
Hún lærði fag sitt á Akureyri og í Valdres í Noregi og lauk meistaraprófi í gullsmíði árið 1983.  Hún opnaði vinnustofu og verslun sama ár á Ísafirði, sem enn er starfrækt, en þar er boðið upp á handunna skartgripi og gjafavöru.
Dýrfinna hefur sem skartgripahönnuður skapað sér sérstakan og persónulegan stíl sem einkennist af frumlegri og oft óhefðbundinni efnismerðferð og djarfri útfærslu. Með þessu hefur hún skipað sér í röð hinna eftirtektaverðustu gullsmiða og skartgripahönnuða á Íslandi.

Dýrfinna hefur tekið þátt í fjölda sýninga, bæði einkasýninga og samsýninga, og hlotið margvísleg verðlaun og viðurkenningar.  Meðal annars hlaut hún 1. verðlaun fyrir tískuskartgrip ársins árin 1997, 1998 og 1999. Hún er einnig fyrrverandi formaður Félags íslenskra gullsmiða.
Dýrfinna starfrækir vinnustofu að Stillholti 16 - 18 á Akranesi.  Þar vinnur hún að skartgripagerð, skúlptúrgerð og gerð lágmynda svo eitthvað sé nefnt.

Hægt er kynna sér verk Dýrfinnu nánar á heimasíðu hennar www.diditorfa.com

 

Senda á Facebook