|
KorpArt-hópurinn á Sjónlistamiðstöðinni á Korpúlfsstöðum, opnar vinnustofur sínar laugardaginn 6. febrúar frá kl.13.00-17.00. Þá gefst gestum tækifæri á að kynnast ólíkum verkum listamanna og hönnuða. Fjölbreytni verkanna, sem eru til sýnis og sölu er mikil, svo sem málverk, leirlist, textíll, fatnaður, hreyfimyndir, grafísk hönnun og landslagsarkitektúr.
Rósu kaffi er opið þar sem hægt er að versla kaffi, kakó og nýbakað bakkelsi á hóflegu verði.
Í vetur er opið hús á Korpúlfsstöðum fyrsta laugardag í mánuði, með breytilegum sýningum. Nánari upplýsingar um listamenn og hönnuði má sjá á vefsíðunni: www.Korpart.is
Kristveig Halldórsdóttir heldur námskeið í notkun stafrænna myndavéla og myndvinnslu

Hvar? Námskeiðið er haldið á Textílverkstæðinu Korpu á Korpúlfsstöðum.
Hvenær? Föstudaginn 12. febrúar kl. 13:00 – 17:00 og laugardaginn 13. febrúar kl: 9:00 – 16:00.
Sama námskeið verður líka haldið föstud. 12. mars – laugard 13. mars.
Kennari: Kristveig Halldórsdóttir, myndlistarmaður og kennari.
Fjöldi: 8 þátttakendur
Klst: 10
Verð: 14.000.- Þið lærið að:
-
Stilla myndavélina.
-
Yfirfæra myndir á tölvu.
-
Flokka myndir.
-
Allt um stærð mynda og skjala.
-
Undirbúa myndir fyrir prentun.
-
Breyta myndum í tölvu.
Takið með: Takið með fartölvu ef þeir getið, myndavél og leiðbeiningabók með myndavélinni ykkar ef þið eigið hana. Á staðnum eru tölvur fyrir þá sem eru ekki með fartölvur. Komið með stílabók/glósubók. Forrit: Adobe Bridge og Photoshop Skráning: hjá Kristveigu – kristveig@islandia.is fyrir 10. febrúar á fyrra námskeiðið og fyrir 10. mars á seinna námskeiðið.
Lágmarksfjöldi er 5 nemendur.
|