
ÁTAK TIL ATVINNUSKÖPUNAR
Á markað með snjöll nýsköpunarverkefni?
Iðnaðarráðuneyti auglýsir eftir umsóknum um styrki úr verkefninu Átaki til atvinnusköpunar.
Átak til atvinnusköpunar veitir styrki til nýsköpunarverkefna og markaðsaðgerða starfandi frumkvöðla- og nýsköpunarfyrirtækja.
Markmið verkefnisins
-
- Að styðja við þróun nýsköpunarhugmynda á fyrri stigum sem hlotið gætu frekari fjármögnun sjóða og fjárfesta.
-
- Að styðja við undirbúning og framkvæmd markaðsaðgerða í frumkvöðla og sprotafyrirtækjum.
-
-
Í umsókn þarf að koma fram
-
- Skýr lýsing á verkefninu í heild og ætluðum árangri þess
-
- Greining á nýnæmi verkefnisins
-
- Greinargóðar kostnaðar- og verkáætlanir
-
- Ýtarleg lýsing á þeim verkþáttum sem er um styrk til, s.s. þróunarvinnu og markaðsstarfs.
Styrkir geta að hámarki numið 50% af heildarkostnaði verkefnisins. Ekki eru veittir styrkir til fjárfestinga s.s. í tækjum og búnaði.
Rafræn eyðublöð má finna á www.nmi.is
Beiðni um upplýsingar og aðstoð má senda á netfangið tinna@nmi.is
Umsóknarfrestur er til og með 16. febrúar n.k.
|